Á hvaða árstími á að klippa?
Almennt sagt má segja að blaðlausi tíminn og sá tími sem trén eru í hvíld séu besti tíminn til klippinga. Árangurinn verður yfirleitt betri þegar trén eru í hvíld og hafa fellt lauf. Lögun og greinaskipan trjánna er greinilegri og það er minni hætta á að maður skaði brumin, þá verður úrgangur miklu minni. Trjágróður þolir þó almennt vel klippingu á öðrum árstímum."Blæðarar"
Sum tré hafa tilhneigingu til að missa mikinn safa við klippingu, venjulega er talað um að trjánum „blæði“. Hér er fyrst og fremst um að ræða Birki og Hlyn. Stórklippingar á þessum tegundum ætti að eiga sér stað yfir sumarið t.d í júlí, eða þá um háveturinn desember til febrúar.
Á vormánuðum þegar trén eru að byrja að undirbúa sig fyrir næsta vaktartímabil frá ca. mars-júní ætti að forðast að fjarlægja stórar greinar og stofna, en öll minniháttar klipping ætti þó að vera í fínu lagi.
Það er þó óþarfi að fara af límingunum þó trjám „blæði“, það er ekki eins skaðlegt of oft er látið í veðri vaka, heilbrigð tré með gott rótarkerfi eiga auðvelt með að bæta sér upp þennan safamissir. Safinn sem getur runnið í stríðum straum úr sárunum innheldur ýmis næringarefni sem tré hafa þörf fyrir til að þrífast vel.
Skrautrunnar
Megin reglan fyrir klippingu skrautrunna fer eftir blómgunartíma þeirra. Blómgunareiginleikar trjágróðurs er í grunnin þrennskonar.- Plöntur sem blómstra á árssprota, það er plantan þroskar blóm sama sumar og árssprotinn vex, venjulega blómstrar plantan seinni hluta sumars. Dæmi rauðblómstrandi kvistir, Rósakvistur, Dögglingskvistur, Snjóber. Klippist á veturna.
- Plöntur sem blómstra á fyrraárssprota, þ. e. s. blómin verða til sumarið áður en þau birtast og liggja í dvala yfir veturinn og blómstra svo strax um vorið eða snemmsumars árið eftir. Flestir skrautrunnar falla undir þennan flokk, t.d allir hvítblómstrandi kvistir, Birkikvistur, Stórkvistur, Bjarkeyjarkvistur og margir fleiri, einnig villirósir eins og Meyjarós, Hjónarós, Sírenur(dísarunnar), Reynitegundir, Rifsberjarunnar o. fl. tegundir.
- Plöntur sem blómstra bæði á ársprota og fyrraárssprota. Dæmi, Hansarós, Runnamura.
Öll meiriháttar klipping og endurnýjun á skrautrunnum ætti að fyrst og fremst að gerast seinni part vetrar eða á vorin.